Kópavogur · Selfoss
578-7744 · [email protected]
Við sérhæfum okkur í meðhöndlun ungabarna og barna með mildri og einstaklingsmiðaðri nálgun. Okkur þykir fátt dýrmætara en að fylgjast með börnum líða betur, blómstra og njóta sín í daglegu lífi.


Á Líf Kíró starfa kírópraktorar með sérhæfingu og mikla reynslu í meðhöndlun barna.

Hlýleg og heimilisleg stemning. Stofan er fjölskylduvæn, með skemmtilegu barnahorni.

Hvert barn er einstakt og því aðlögum við nálgunina að þörfum þess, svo því líði öruggu og vel hjá okkur.
Við skiljum vel að foreldrar hafi margar spurningar þegar kemur að heilsu og líðan barnsins. Hér höfum við tekið saman svör við algengustu spurningunum svo þú vitir betur við hverju má búast. Ef þú finnur ekki svarið sem þú leitar að er þér alltaf velkomið að hafa samband við okkur.
Börn mega koma til okkar alveg frá fæðingu. Aðferðirnar sem við notum eru aðlagaðar með aldur og þroska barnsins í huga og eru sérstaklega mjúkar þegar um ungabörn er að ræða, líkt og þegar verið er að skoða hvort avocado sé tilbúið.
Ástæðurnar geta verið fjölbreyttar. Foreldrar leita meðal annars til okkar vegna erfiðleika við brjóstagjöf, óværðar, svefnvanda, óþæginda í bílstól, bakflæðis, meltingarvandamála eða hægðatregðu. Einnig koma börn til okkar eftir erfiða eða langa fæðingu, vegna stífleika, skertrar hreyfigetu, ósamhverfu eða þegar þau virðast kjósa að horfa eða snúa sér meira í aðra áttina. Við skoðum hvert barn vandlega og metum hvort eitthvað í hreyfigetu eða stoðkerfi þess geti tengst óþægindunum.
Meðferð barna er einstaklega mjúk, róleg og alltaf aðlöguð að aldri og þroska barnsins. Við notum léttan og nákvæman þrýsting til að vinna með svæði þar sem við finnum fyrir spennu eða skertri hreyfigetu. Þrýstingurinn er svipaður og þegar maður athugar varlega hvort avókadó sé tilbúið. Við fylgjum alltaf viðbrögðum barnsins og leggjum áherslu á að því líði öruggt og vel allan tímann.
Nei, meðferð barna er ekki eins og meðferð fullorðinna. Við notum einstaklega mjúkar og rólegar aðferðir sem eru aðlagaðar að aldri, stærð og þroska barnsins. Þrýstingurinn er svipaður og þegar maður athugar varlega hvort avókadó sé tilbúið.
Nei, meðferð barna er mjög mjúk og róleg og á ekki að valda sársauka. Við notum aðeins léttan og nákvæman þrýsting, fylgjumst vel með barninu og förum alltaf á hraða þess. Öryggi og vellíðan barnsins eru alltaf í fyrirrúmi.
Þú þarft ekki að vera búin að átta þig á því sjálf/ur. Þú getur haft samband við okkur og sagt okkur frá því sem þú hefur tekið eftir. Við hjálpum þér að meta hvort rétt sé að bóka skoðun eða hvort leita eigi til annars heilbrigðisstarfsfólks.
Á Líf Kíró starfa kírópraktorar með sérhæfingu í meðhöndlun barna. Við leggjum áherslu á hlýja, varfærna og einstaklingsmiðað nálgun. Markmiðið er að styðja við hreyfingu, þægindi og vellíðan barnsins með mjúkri meðhöndlun, hlýju umhverfi og skýrri upplýsingagjöf.



Við hlustum á foreldra, förum yfir sögu barnsins og ræðum líðan þess, daglegt líf og helstu áhyggjuefni.


Kírópraktor framkvæmir skoðun og metur meðal annars hreyfingu, stífleika og önnur atriði sem gætu haft áhrif á líðan barnsins.


Við ræðum markmið fjölskyldunnar og bókum niðurstöðutíma. Þar fer kírópraktor yfir mat sitt og útskýrir hvaða meðferð hentar barninu best.
Bókaðu frítt viðtal og við hringjum í þig.
Við hlustum á það sem veldur þér áhyggjum og hjálpum þér að meta næstu skref,
hvort rétt sé að bóka tíma hjá okkur eða leita til annars fagaðila.
Hlíðasmári 15, 201 Kópavogur
Austurvegur 9, 800 Selfoss
578-7744
© 2026 Líf Kírópraktík - All Rights Reserved.