Kópavogur · Selfoss
578-7744 · [email protected]
Við leggjum mikið upp úr því að veita framúrskarandi þjónustu í góðu andrúmslofti
Okkar sérþekking er það sem gerir okkur einstök
Aðferðirnar okkar eru mildar, sérstaklega aðlagaðar fyrir ungbörn, börn, óléttar konur, skrifstofufólk og íþróttafólk.
Enhance mobility and build strength through sequences designed to support flexibility and muscular balance.

Við notum skýr meðferðarplön svo þú eigir möguleika á að finna fyrir mestum mun, ná þínum markmiðum og sjá varanlega bætingu.
Við notum öruggar, mjúkar og sérhæfðar aðferðir og eru kírópraktorar okkar með Webster
Við erum ein af fáum stöðum sem vinna jafn mikið með mæðrum og smábörnum.
Þú færð nákvæmar æfingar, líkamsstöðuleiðbeiningar og dagleg verkfæri sem hjálpa þér að halda áfram að bæta líðanina utan klíníkur.
Practice focused breathing techniques to relieve stress, center your thoughts, and deepen your awareness.
Fyrir þig og þína
Skoðaðu hvernig við getum stutt þig og fjölskylduna þína.
Mjúk og einstaklingsmiðuð nálgun fyrir ungbörn sem upplifa meðal annars stífleika, óværð eða erfiðleika við hreyfingu og brjóstagjöf.
Við aðstoðum börn sem upplifa meðal annars stífleika, verki, höfuðverk eða skerta hreyfigetu.
Mjúk og örugg nálgun við grindar-, mjaðma- og bakverkjum og öðrum stoðkerfisóþægindum á meðgöngu.
Fyrir fólk sem glímir við höfuðverk, háls- eða bakverki, stífleika og önnur óþægindi frá stoðkerfinu.
Fyrir fólk sem stundar hreyfingu og vill bæta hreyfigetu, styðja við endurheimt og ná sem bestum árangri.
Aðstoð við spennu, höfuðverk, stífleika og bak- og hálsverki sem geta fylgt langvarandi setu.
Við hjálpum við margvísleg vandamál, þar á meðal: Höfuðverki, mígreni, hálsverki, vöðvabólgu, efra baks verki, mjóbaksverki, mjaðmagrindar verki á meðgöngu, verki í öxlum, mjöðmum, hnjám og ökklum, vandamál við brjóstagjöf, svefnavandamál hjá börnum og fullorðnum, verkir og spennu hjá skrifstofufólki, stífleika og alla aðra stoðkerfisverki.
Kírópraktík vinnur með stoðkerfið sem er hryggurinn og taugakerfið. Með mjúkum og nákvæmum hnykkingum leiðréttum við skekkjur og bólgur sem hafa myndast sem dregur úr spennu, bætir hreyfingu, minnkar bólgur og eykur virkni líkamans, sem skilar sér í minni verkjum, betri hreyfingu og meiri lífsgæðum.
Allir sem hafa komið til okkar tala um hvað þetta er miklu minna mál en þau héldu. Flestir upplifa meðferðina sem mjúka, létta og þægilega. Meðferð fyrir ungbörn og óléttar konur er mjög mild og einstaklega örugg. Það sem ber að hafa í huga að hnykking sé alltaf framkvæmd af aðila eins og kírópraktor sem er sérmenntaður í að framkvæma hnykkingu. Það er stór munur á að braka og hnykkja. Varhugavert er að láta aðila sem eru ekki kírópraktorar eða osteopati "braka" í þér.
Margir finna breytingu nánast strax eða innan fyrstu 2–4 vikna.
Samkvæmt okkar reynslu og gögnum finna flestir mun og bestan árangur á 8-12 vikum.
Það fer eftir vandamáli, þörfum, ástandi og markmiðum. Við vinnum yfirleitt með 8–12 vikna meðferðarplön sem samanstanda af 1–3 heimsóknum í viku í byrjun.
Já, sérstaklega hjá okkur, þar sem við notum mjúkar , öruggar og einstaklismiðaðar aðferðir.
Meðferð fyrir ungbörn og óléttar konur er ein mildasta og öruggasta meðferð sem til er og eru okkar kírópraktorar búnir að sækja sér meiri menntun og reynslu í því.

Hlíðasmári 15, 201 Kópavogur
Austurvegur 9, 800 Selfoss
578-7744
© 2026 Líf Kírópraktík - All Rights Reserved.