Kópavogur · Selfoss
578-7744 · [email protected]
Meðferðin er sniðin að þínum þörfum og því sem þú vilt fá út úr tímanum
50 mín • 16.900 kr.
Heilnudd er einstaklingsmiðað nudd þar sem unnið er með allan líkamann eða þau svæði sem þarfnast mestrar athygli. Meðferðin hentar vel fyrir þá sem vilja losa um vöðvaspennu, draga úr stífleika og styðja við slökun og endurheimt.
50 mín • 16.900 kr.
Mjúkt og einstaklingsmiðað nudd sem er sérstaklega aðlagað að þörfum verðandi mæðra. Áhersla er lögð á þægindi og slökun ásamt því að vinna með spennu og óþægindi sem geta fylgt meðgöngu.
25 mín • 10.900 kr.
Markvisst nudd þar sem einblínt er á eitt til tvö ákveðin svæði, til dæmis háls og herðar, bak eða fætur. Hentar vel þegar spennan eða óþægindin eru staðbundin.
75 mín • 19.900 kr.
Mjúkt og róandi nudd sem styður við náttúrulegt flæði sogæðakerfisins. Meðferðin getur hjálpað til við að draga úr bjúg og spennu ásamt því að stuðla að slökun og almennri vellíðan.
Við hjálpum við margvísleg vandamál, þar á meðal: Höfuðverki, mígreni, hálsverki, vöðvabólgu, efra baks verki, mjóbaksverki, mjaðmagrindar verki á meðgöngu, verki í öxlum, mjöðmum, hnjám og ökklum, vandamál við brjóstagjöf, svefnavandamál hjá börnum og fullorðnum, verkir og spennu hjá skrifstofufólki, stífleika og alla aðra stoðkerfisverki.
Kírópraktík vinnur með stoðkerfið sem er hryggurinn og taugakerfið. Með mjúkum og nákvæmum hnykkingum leiðréttum við skekkjur og bólgur sem hafa myndast sem dregur úr spennu, bætir hreyfingu, minnkar bólgur og eykur virkni líkamans, sem skilar sér í minni verkjum, betri hreyfingu og meiri lífsgæðum.
Allir sem hafa komið til okkar tala um hvað þetta er miklu minna mál en þau héldu. Flestir upplifa meðferðina sem mjúka, létta og þægilega. Meðferð fyrir ungbörn og óléttar konur er mjög mild og einstaklega örugg. Það sem ber að hafa í huga að hnykking sé alltaf framkvæmd af aðila eins og kírópraktor sem er sérmenntaður í að framkvæma hnykkingu. Það er stór munur á að braka og hnykkja. Varhugavert er að láta aðila sem eru ekki kírópraktorar eða osteopati "braka" í þér.
Margir finna breytingu nánast strax eða innan fyrstu 2–4 vikna.
Samkvæmt okkar reynslu og gögnum finna flestir mun og bestan árangur á 8-12 vikum.
Það fer eftir vandamáli, þörfum, ástandi og markmiðum. Við vinnum yfirleitt með 8–12 vikna meðferðarplön sem samanstanda af 1–3 heimsóknum í viku í byrjun.
Já, sérstaklega hjá okkur, þar sem við notum mjúkar , öruggar og einstaklismiðaðar aðferðir.
Meðferð fyrir ungbörn og óléttar konur er ein mildasta og öruggasta meðferð sem til er og eru okkar kírópraktorar búnir að sækja sér meiri menntun og reynslu í því.

Hlíðasmári 15, 201 Kópavogur
Austurvegur 9, 800 Selfoss
578-7744
© 2026 Líf Kírópraktík - All Rights Reserved.