Kópavogur · Selfoss

578-7744 · [email protected]

Kírópraktík fyrir alla fjölskylduna

SÍÐAN ER Í VINNSLU - ÞÖKKUM ÞOLINMÆÐINA

Betri líðan

fyrir þig og þína

Hjá Líf Kíró er öll fjölskyldan velkomin. Við bjóðum sérhæfða kírópraktík fyrir ungbörn, börn, fólk á meðgöngu, íþróttafólk og fullorðna.

Kírópraktík fyrir alla fjölskylduna

Betri líðan

fyrir þig og þína

Hjá Líf Kíró er öll fjölskyldan velkomin. Við bjóðum sérhæfða kírópraktík fyrir ungbörn, börn, fólk á meðgöngu, íþróttafólk og fullorðna.

KÍRÓPRAKTÍK Á MEÐGÖNGU

Með þér í gegnum

meðgönguna

Líkaminn tekur miklum breytingum á meðgöngu. Við tökum vel á móti þér með sérhæfðri, mildri og einstaklingsmiðaðri nálgun sem er aðlöguð að þér og þínum þörfum.

Sérhæfing

Á Líf Kíró starfa kírópraktorar með sérhæfingu í meðhöndun kvenna á meðgöngu.

Hlý móttaka

Hlýleg og heimilisleg stemning í notalegu umhverfi þar sem þú ert í góðum höndum.

Einstaklingsmiðuð nálgun

Hver meðganga og hver líkami eru ólík. Meðferðin er aðlöguð að þínum þörfum og markmiðum.

Algengar spurningar

Við skiljum vel að margar spurningar geti vaknað þegar kemur að kírópraktík á meðgöngu. Hér höfum við tekið saman svör við algengustu spurningunum svo þú vitir betur við hverju má búast. Ef þú finnur ekki svarið sem þú leitar að er þér alltaf velkomið að hafa samband við okkur.

Hvenær á meðgöngu má koma til kírópraktors?

Þú getur komið á hvaða tímabili meðgöngunnar sem er. Skoðun og aðferðir eru alltaf aðlagaðar að því hvar þú ert stödd á meðgöngunni, líðan þinni og þínum þörfum. Það er auðvitað alltaf gott að koma snemma á meðgöngunni til þess að ná að halda líkamanum.

Af hverju leita konur til kírópraktors á meðgöngu?

Ástæðurnar eru mismunandi. Margar konur leita til okkar vegna óþæginda eða stífleika í baki, mjóbaki og mjaðmagrind, breyttrar líkamsstöðu eða þegar hreyfing og daglegt álag verða erfiðari.

Hvernig er meðhöndlunin aðlöguð að meðgöngu?

Allar aðferðir og stöður eru valdar með meðgönguna í huga. Við notumst við meðgöngupúða svo konan geti legið þæginlega. Tekið er mið af því hvar þú ert stödd á meðgöngunni, líðan þinni og niðurstöðum skoðunar. Við leggjum áherslu á milda nálgun, þægindi og skýrar útskýringar.

Getur kírópraktísk meðferð haft áhrif á fæðinguna?

Markmiðið með meðferð á meðgöngu er meðal annars að styðja við hreyfanleika, jafnvægi og vellíðan líkamans þegar hann undirbýr sig fyrir fæðingu. Góður hreyfanleiki í mjaðmagrind og minni óþægindi geta hjálpað þér að líða betur og hreyfa þig frjálslegar. Hins vegar er ekki hægt að lofa ákveðinni útkomu eða því að fæðingin verði styttri eða auðveldari.

Hvað er Webster-aðferðin?

Webster-aðferðin er sérhæfð kírópraktísk nálgun fyrir meðgöngu sem beinist að spjaldhrygg og mjaðmagrind. Markmiðið er að styðja við jafnvægi og hreyfanleika á þessu svæði. Hjá okkur starfa kírópraktorar með sérstaka þjálfun í Webster.

Getur meðhöndlun hjálpað við grindarverki og óþægindi í mjóbaki?

Margar konur upplifa minni verki já en það er auðvitað einstaklingsbundið. Við skoðum hreyfingu og álag í mjóbaki, spjaldhrygg og mjaðmagrind og aðlögum nálgunina að þinni líðan. Markmiðið er að styðja við betri hreyfigetu og draga úr því álagi sem getur fylgt breytingum á líkamanum á meðgöngu. Árangur er þó alltaf einstaklingsbundinn.

Sérhæfing í

meðhöndlun á meðgöngu

Hjá Líf Kíró starfa kírópraktorar með sérhæfða þjálfun í meðhöndlun á meðgöngu. Við leggjum áherslu á hlýja, varfærna og einstaklingsmiðaða nálgun sem tekur mið af breytingum líkamans á hverju skeiði meðgöngunnar. Markmiðið er að styðja við hreyfigetu, þægindi og betri líðan á þessu einstaka tímabili.

Fyrsti tíminn

Samtal

Við hlustum, förum yfir sögu og ræðum líðan, daglegt líf og helstu áhyggjuefni.

Mat

Kírópraktor framkvæmir skoðun og metur meðal annars hreyfingu, stífleika og önnur atriði sem gætu haft áhrif á líðan móður.

Útskýring og næstu skref

Við ræðum markmið og bókum niðurstöðutíma. Þar fer kírópraktor yfir mat sitt og útskýrir hvaða meðferð hentar best.

Getum við aðstoðað þig?

Bókaðu frítt viðtal og við hringjum í þig.

Við hlustum á það sem veldur þér áhyggjum og hjálpum þér að meta næstu skref,
hvort rétt sé að bóka tíma hjá okkur eða leita til annars fagaðila.

Upplýsingar

Image

Heimilisfang

Hlíðasmári 15, 201 Kópavogur

Austurvegur 9, 800 Selfoss

Image

Sími

578-7744

© 2026 Líf Kírópraktík - All Rights Reserved.