PERSÓNUVERND
Upplýsingar
LIFE 18 EHF., kt: 431017-1050, Hlíðasmára 15, 201 Kópavogi, 578-7744, mottaka@lifkiro.is
LIFE 18 ehf áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.
Afhending vöru
Allar pantanir eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Af öllum pöntunum dreift af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. LIFE 18 ehf ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá LIFE 18 ehf til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda. Hægt er að greiða 590 kr. fyrir rekjanlegt bréf. Frí heimsending er á pöntunum 10.000 kr og yfir nema annað komi fram í lýsingu á vöru.
Verð á vöru og sendingarkostnaður
Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk en sendingarkostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram. Við sendum allar vörur með Íslandspósti beint heim að dyrum. Sendingarkostnaður er 1290kr.
Að skipta og skila vöru
Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað.
Gölluð vara
Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingarkostnað sem um ræðir. Eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leyti vísast til laga um neytendakaup nr.48/2003 og laga um neytendasamninga.
Trúnaður (Öryggisskilmálar)
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.
Privacy policy All personal information will be strictly confidential and will not be given or sold to a third party.
Lög og varnarþing
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness
Governing law / Jurisdiction These Terms and Conditions are in accordance with Icelandic law.
LIFE 18 ehf er umhugað um friðhelgi einkalífs og kappkostar að vernda upplýsingar
þínar hvort heldur sem um er að ræða almennar upplýsingar eða persónuupplýsingar. Hér fyrir neðan er
PERSÓNUVERNDARYFIRLÝSING LIFE 18 ehf.
Almennt
LIFE 18 ehf er umhugað um friðhelgi einkalífs og kappkostar að vernda persónuupplýsingar þínar. Í þessari
persónuverndaryfirlýsingu kemur fram hvernig við umgöngumst þær persónuupplýsingar sem við geymum um
þig og hvaða réttindi þú átt varðandi upplýsingarnar.
Ábyrgðaraðili
LIFE 18 ehf, kt 4310171050, Hlíðarsmári 15, 201 Kópavogur er ábyrgðaraðili fyrir þeirri vinnslu persónuupplýsinga
sem fram fer í tengslum við þjónustu og vörur LIFE 18 ehf.
Hvaða upplýsingum söfnum við?
Persónuupplýsingar eru hvers kyns upplýsingar um einstakling sem gera mögulegt að persónugreina hann,
beint eða óbeint. Við söfnum einkum eftirfarandi persónuupplýsingum um þig:
• Tengiliðaupplýsingar, s.s. nafn, kennitölu, heimilisfang, tölvupóstfang og símanúmer.
• Greiðsluupplýsingar, t.d. greiðslukortanúmer og upplýsingar um greiðslur.
• Tæknileg gögn, t.d. IP-tölur og önnur gögn tengd notkun þinni á vefsíðu okkar.
• ANNAÐ, t.d. gögn samfélagsmiðla.
Hvernig söfnum við upplýsingum
Tengiliðaupplýsingum söfnum við frá þér í gegnum síma, í gegnum tölvupóst eða með öðrum hætti þar sem þú hefur m.a.
veitt sjálfviljugur þessar upplýsingar. Jafnframt höldum við utan um greiðsluupplýsingar og útgefna reikninga
sem eru nauðsynlegar vegna samningssambands okkar og til að uppfylla skilyrði skatta- og bókhaldslaga.
Við notkun þína á vefsvæði okkar söfnum við vissum upplýsingum með notkun vafrakaka (e. cookies). og með
sambærilegri tækni. Sjá vefkökustefnu félagsins hér.
Tilgangur vinnslu okkar á persónuupplýsingum
Við vinnum eingöngu persónuupplýsingar þínar að því marki sem lög heimila. Helstu tilvik eru eftirfarandi:
• Til að svara fyrirspurnum þínum og/eða bregðast við óskum þínum, t.d. til að senda þér fréttabréf eða
tilkynningu um viðburð.
• Til að efna samning okkar við þig um veitingu ákveðinnar þjónustu eða vöru,
• Til að gæta lögmætra hagsmuna LIFE 18 ehf.
• Til að gera þér kleift að deila efni á samfélagsmiðlum af vefsvæði okkar, til að afgreiða verðlaun, styrki eða
framlög eftir því sem við á og/eða til að gera þér kleift að taka þátt í leikjum, keppnum, kynningarherferðum,
könnunum eða öðrum kynningum á okkar vegum. Í einhverjum tilvikum kunna að vera viðbótarupplýsingar
sem þú þarft að kynna þér sérstaklega og hvetjum við þig til að gera það.
Notkun persónuupplýsinga í markaðstengdum tilgangi
Að því gefnu að þú veitir okkur samþykki þitt getum við notað persónuupplýsingar þínar til að kynna fyrir þér
vörur og þjónustur frá okkur, eignartengdum félögum eða samstarfsaðilum. Við gætum einnig sent þér annað
markaðstengt efni sem við teljum að þú gætir haft áhuga á.
Þessi samskipti gætu átt sér stað í gegnum tölvupóst, síma, bréfleiðis eða með SMS. Þú getur alltaf
afturkallað samþykki þitt hvenær sem þér hentar til að koma í veg fyrir að við sendum þér efni í
markaðstengdum tilgangi í framtíðinni. Í slíkri beiðni þarf að koma skýrt fram að þú viljir ekki fá sent frá okkur
efni, framvegis. LIFE 18 ehf. geymir og varðveitir beiðnir þar að lútandi.
Miðlun til þriðju aðila
Í því skyni að uppfylla þann tilgang sem lýst er hér að ofan kann að vera nauðsynlegt að miðla persónugreinanlegum upplýsingum um þig til þriðju aðila. Slíkir aðilar geta verið ábyrgðaraðilar eða vinnsluaðilar eftir atvikum. Helstu dæmi um slíka aðila eru eftirfarandi: Þjónustuaðilar okkar, t.d. hýsingaraðilar UT-búnaðar og fjarskiptafyrirtæki; Ráðgjafar okkar, t.d. lögmenn, endurskoðendur og vátryggjendur; Innheimtufyrirtæki. Með samþykki þínu getum við notað auglýsingafyrirtæki sem telst til þriðja aðila til að setja inn auglýsingar á vefsvæðið okkar. Við miðlum gögnum einungis að því marki sem nauðsynlegt er og heimilum þriðju aðilum ekki önnur not þeirra.
Öryggi persónuupplýsinga
LIFE 18 ehf. viðhefur viðeigandi öryggisráðstafanir í því skyni að hindra að persónuupplýsingar þínar glatist,
breytist, verði birtar eða aðgangur veittur að þeim í leyfisleysi. Aðgangur að upplýsingunum er auk þess
takmarkaður við þá aðila sem nauðsyn ber til og sem eru bundnir trúnaðarskuldbindingu. Ef upp kemur
öryggisbrestur sem hefur áhrif á persónuupplýsingar munum við tilkynna slíkt til Persónuverndar og eftir
atvikum til þín eftir því sem lög mæla fyrir um. Teljir þú að samskipti þín við okkur séu ekki örugg, biðjum við þig um að láta okkur umsvifalaust vita um
vandamálið með því að senda póst á netfangið: mottaka@lifkiro.is
Hve lengi eru persónuupplýsingar geymdar?
Persónuupplýsingar geymum við aðeins svo lengi sem nauðsyn ber til í þeim tilgangi sem þeirra var aflað.
Geymslutími slíkra persónuupplýsinga fer eftir eðli upplýsinganna og þeim lagareglum sem gilda um
viðkomandi vinnslu persónuupplýsinga, t.d. skatta- eða bókhaldslöggjafar. Í einstaka tilvikum kann einnig að
vera nauðsynlegt að geyma gögn vegna lögmætra hagsmuna LIFE 18 ehf, t.d. vegna deilumála.
Réttur þinn
Í vissum tilvikum átt þú réttindi samkvæmt persónuverndarlöggjöf í tengslum við vinnslu okkar á
persónuupplýsingum. Ef þú vilt neyta þessara réttinda biðjum við þig að hafa samband við okkur og við
munum leitast við að svara beiðni þinni eins fljótt og auðið er (í flestum tilvikum innan eins mánaðar frá
móttöku) nema um sé að ræða margar eða umfangsmiklar beiðnir. Við kunnum að óska eftir
viðbótarupplýsingum frá þér í tengslum við beiðni þína, t.d. vegna auðkenningar.
LIFE 18 ehf tekur almennt ekki gjald fyrir afhendingu gagna eða afgreiðslu annarra beiðna. Við áskiljum okkur þó
rétt á að innheimta gjald eða synja um afhendingu þegar um er að ræða beiðnir sem eru bersýnilega
tilhæfulausar, óhóflegar eða margendurteknar.
Réttur til aðgangs: Þú átt rétt á að óska eftir aðgangi að persónuupplýsingum um þig og að fá afhent afrit
upplýsinganna. Með þeim hætti getur þú fullvissað þig um að upplýsingarnar séu réttar og að vinnsla okkar á
þeim sé í samræmi við lög.
Réttur til að flytja eigin gögn: Í vissum tilvikum kannt þú að eiga rétt á að fá
afhentar persónuupplýsingar um þig, sem þú hefur látið okkur í té, á algengu, tölvulesanlegu sniði. Þú átt líka
rétt á að senda þessar upplýsingar til annars ábyrgðaraðila.
Réttur til leiðréttingar: Ef einhverjar upplýsingar um þig eru rangar eða ónákvæmar átt þú almennt rétt á að
láta okkur leiðrétta þær.
Réttur til eyðingar: Í vissum tilvikum getur þú átt rétt á að við eyðum
persónuupplýsingum sem við geymum um þig. Þetta á einkum við í þeim tilvikum þar sem upplýsingarnar eru
ekki lengur nauðsynlegar, ef þú hefur andmælt vinnslu upplýsinganna (sbr. hér að neðan), ef vinnslan reynist
ólögmæt, eða ef vinnslan byggði á samþykki sem þú hefur síðar afturkallað. LIFE 18 ehf áskilur sér þó rétt til að
meta í hvert eitt sinn hvort skylt sé að eyða gögnum.
Réttur til að andmæla vinnslu: Ef vinnsla okkar byggir á
lögmætum hagsmunum LIFE 18 ehf eða annarra, og þú telur að vegna aðstæðna þinna brjóti vinnslan gegn
grundvallarréttindum þínum, getur þú andmælt vinnslunni. Ef þú andmælir, hættum við vinnslunni nema við
getum bent á ríkari lögmæta hagsmuni af að halda henni áfram.
Réttur til takmörkunar á vinnslu: Í eftirtöldum tilvikum átt þú rétt á að við stöðvum vinnslu persónuupplýsinga:
• ef þú vefengir að persónuupplýsingarnar séu réttar (þangað til við getum staðfest að þær séu réttar),
• vinnslan er ólögmæt, en þú vilt ekki að persónuupplýsingunum sé eytt,
• við þurfum ekki lengur á persónuupplýsingunum að halda fyrir vinnsluna en þú þarfnast þeirra til þess að
stofna, hafa uppi eða verja réttarkröfur,
• þú hefur andmælt vinnslunni, sbr. að ofan. Í því tilviki stöðvum við vinnslu meðan við höfum ekki bent á ríkari
lögmæta hagsmuni okkar af að halda henni áfram.
Réttur til að afturkalla samþykki: Í þeim tilvikum þar sem við byggjum vinnslu á samþykki þínu er þér ávallt
heimilt að afturkalla slíkt samþykki. Afturköllun þýðir þó ekki að vinnsla sem fór fram áður en samþykki var
afturkallað sé ólögmæt.
Árangursmælingar
LIFE 18 ehf safnar upplýsingum um mætingu þátttakenda á auglýsta viðburði ásamt því að safna upplýsingum
um notkun á vörum og þjónustu okkar. Þetta er gert til að skilja betur hvaða þættir þjónustunnar nýtast
viðskiptavinum best og til að mæla viðbrögð þeirra við nýjum vörum og þjónustum eða breytingum á
núverandi vörum eða þjónustu.
Persónuverndarfulltrúi/Tengiliður.
Ef þú hefur spurningar, athugasemdir, eða kvartanir fram að færa varðandi
þessa persónuverndaryfirlýsingu eða meðferð LIFE 18 ehf á persónuupplýsingum getur þú haft samband við
okkur á netfangið mottaka@lifkiro.is
Ef þú telur þig ekki hafa fengið úrlausn þinna mála er þér ávallt heimilt að beina kvörtun til Persónuverndar
(vefsíða: www.personuvernd.is).
Breytingar
Persónuverndaryfirlýsing þessi var samþykkt þann [x.y.2019].
Persónuverndarstefna okkar er í stöðugri skoðun og því kann þessari persónuverndaryfirlýsingu að verða
breytt. Við munum birta allar slíkar breytingar vefsíðu okkar www.ibokhald.is.
Með sama hætti er okkur mikilvægt að upplýsingar um þig séu ávallt sem réttastar. Því biðjum við þig
góðfúslega að láta okkur vita ef tengiliðaupplýsingar þínar (t.d. símanúmer þitt eða netfang) eða aðrar
upplýsingar breytast
Vefkökustefna
LIFE 18 ehf sem til einföldunar verður hér eftir talað um sem „við“.
Stefna okkar um notkun á vefkökum felur í sér skilgreiningu á því hvað vefkökur eru og hvernig þær eru
notaðar á vefsvæðum okkar. Við hvetjum þig til að kynna þér vefkökustefnuna til að skilja betur og átta þig á í
hvaða tilgangi við notum þær, hvaða upplýsingum er safnað, hvaða gerðir af vefkökum við notum og hvernig
upplýsingarnar eru nýttar. Einnig felur stefnan í sér upplýsingar um rétt þinn í tengslum við notkun á
vefkökum. Við áskiljum okkur rétt til að breyta stefnunni um vefkökur hvenær sem er með því að gera nýja
stefnu aðgengilega á vefsvæði okkar.
Hvað eru vefkökur?
Vefkökur eru litlar textaskrár sem vefsvæði senda í tölvuna þína eða snjalltæki þegar þú heimsækir vefsvæði
okkar.
Með notkun á vefkökum getum við þekkt og vitað hvaða tæki þú notar þegar þú heimsækir vefsvæði okkar.
Vefkökur geta geymt upplýsingar eins og texta, númer, dagsetningar og fleira.
Vefkökur okkar geyma ekki persónugreinanleg gögn né deilum við upplýsingum sem við söfnum með þriðju
aðilum.
Notendur vefsvæðanna hafa alltaf möguleika á að loka fyrir notkun á vefkökum eða að veita leyfi í hvert skipti
sem vefsvæði okkar er notað. Slíkar stillingar gætu haft áhrif á virkni vefsvæðisins og þannig takmarkað
notkun þess að hluta eða öllu leiti.
Hvernig notum við vefkökur?
Almennt eru vefkökur notaðar til að vefsvæðið virki eða þau starfi betur og sé skilvirkari. Með því að nota
vefkökur er okkur kleift að gera alla notkun þína á vefsvæðinu þægilegri og betri. Við notum eingöngu
vefkökur sem við teljum gagnlegar og nauðsynlegar.
Á vefsvæðum okkar notum við vefkökur til að fylgjast með hvernig þau virka og munum kjörstillingar þínar s.s.
tölvuna þína eða búnað.
Yfirlit yfir vefkökur okkar
Tæknilegar vefkökur:
Vefkökur þessar eru nauðsynlegar vegna reksturs á vefsvæðum svo þau og eiginleikar þess virki. Tæknilegar
vefkökur eru settar sjálfkrafa inn á tölvuna þína þegar þú ferð inn á vefsvæðið, nema þú hafir valið að vafrinn
þinn hafni vefkökum. Með skiptingu á milli http og https tryggja þessar kökur m.a. öryggi notenda. Þær vista einnig ákvörðun
notenda um notkun á kökum á vefsvæði okkar.
Frammistöðu vefkökur:
Þessar vefkökur eru ekki nauðsynlegar við notkun vefsvæða okkar en þær gegna mikilvægu hlutverki fyrir
notkun og virkni þeirra. Með þeim getum við safnað upplýsingum um frammistöðu vefsvæða og auðveldar
okkur þannig að aðlaga það að þörfum notenda, s.s. með því að senda þér sértæk tilboð.
Hvaða vefkökur notum við frá þriðja aðila? Við notum vefkökur sem tilheyra þriðja aðila á vefsvæðum okkar, s.s.frá Google, Facebook, Instagram og
Youtube. Þessir aðilar geta komið fyrir vefkökum í vöfrum notenda og með þeim hætti nálgast upplýsingar um
aðgengi og notkun á vefsvæðunum. Slíkar þjónustur eru einkum notaðar til að afla upplýsinga um notkun á
vefsvæðunum svo betur sé hægt að aðlaga þau að þörfum notenda. Nánari upplýsingar um hvernig þriðju
aðilarnir nota vefkökur má nálgast á vefsíðum þeirra.
LIFE 18 ehf notar Google Analytics til vefmælinga. Við hverja komu inn á vefinn eru nokkur atriði skráð, svo sem
tími og dagsetning, leitarorð, frá hvaða vef er komið og gerð vafra og stýrikerfis. Þessar upplýsingar má nota
við endurbætur á vefnum og þróun hans, t.d. um það efni sem notendur sækjast mest eftir og fleira. Engum
frekari upplýsingum er safnað um hverja komu og ekki er gerð tilraun til að tengja slíkar upplýsingar við aðrar
persónugreinanlegar upplýsingar.
Þinn réttur
Þegar þú kemur í fyrsta skipti inn á vefsvæði okkar ert þú spurð(ur) hvort þú samþykkir notkun á vefkökum.
Þú getur hvenær sem er lokað fyrir vefkökur með því að hreinsa þær út eða eyða þeim úr vafranum þínum.
Þú getur líka breytt stillingum fyrir vefkökur í vafranum þannig að hann taki ekki á móti þeim.
Hafa samband
Ef þú hefur einhverjar spurningar um notkun okkar á vefkökum þá vinsamlegast sendu okkur póst á
mottaka@lifkiro.is tölvupóst á mottaka@lifkiro.is
Reykjavík, 1. Febrúar 2021